Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 16. október 2020 19:30
Brynjar Ingi Erluson
Forlan líkir Cavani við Zlatan
Edinson Cavani er 33 ára gamall en á nóg eftir samkvæmt Forlan
Edinson Cavani er 33 ára gamall en á nóg eftir samkvæmt Forlan
Mynd: Getty Images
Diego Forlan, fyrrum leikmaður Manchester United og úrúgvæska landsliðsins, segir að Edinson Cavani minni mikið á sænska framherjann Zlatan Ibrahimovic.

Man Utd samdi við Cavani undir lok gluggans en hann kom á frjálsri sölu eftir að hafa verið á mála hjá franska stórliðinu Paris Saint-Germain.

Cavani er 33 ára gamall en hann gerði 200 mörk í 301 leik fyrir PSG og eru væntingarnar miklar. Forlan segir að stuðningsmenn United þurfi þó ekki að hafa áhyggjur því að Cavani eldist jafnvel og Zlatan, sem er 39 ára gamall og enn að raða inn mörkum í Seríu A.

„Edinson er enn frábær leikmaður og mjög öflug félagaskipti hjá Man Utd, svipað og með Zlatan. Hann er þessi týpa af leikmanni og það sést bara hvernig hann æfir og spilar leikinn. Hann mun hafa góð áhrif á ungu leikmennina," sagði Forlan.

„Hann er sigurvegari, fæddur markaskorari og hefur unnið marga titla. Hann hefur skorað mikið hjá öllu félögum sem hann hefur spilað með og leggur líka upp mörk. Cavani er sterkur og það mun henta vel í enska boltanum."
Athugasemdir
banner
banner
banner