Fotbolti.net
12.09.26 - 13:39
Brynjar Ingi Erluson

Championship: Dramatík í nýliðaslagnum

Thierry Gale fagnar sigurmarkinu fyrir Bolton í dag

Thierry Gale fagnar sigurmarkinu fyrir Bolton í dag

Canon

Mynd: Bolton Wanderers

Bolton Wanderers vann dramatískan 1-0 sigur á Cardiff City í nýliðaslag í ensku B-deildinni í dag.
Thierry Gale tryggði Bolton sigur á Cardiff með skallamarki undir lok leiks eftir laglega fyrirgjöf Theo Blair frá vinstri.

Bolton hafði tapað síðustu fjórum deildarleikjum og stefndi í enn einn leikinn án sigurs áður en Gale steig upp. Liðið er nú með sjö stig eftir sjö leiki en Cardiff aðeins fjögur.

Birmingham vann 2-1 endurkomusigur á Derby County eftir að Bobby Clark kom heimamönnum yfir á 40. mínútu. Forystan entist þó aðeins í tvær mínútur því Carlos Vicente jafnaði metin fyrir hlé.

Paik Seung-Ho skoraði síðan sigurmarkið hálftíma fyrir leikslok eftir stoðsendingu Liam Millar, sem kom á láni frá Hull undir lok félagaskiptagluggans. Birmingham er í áttunda sæti með tíu stig en Derby í því 22. með fjögur.

WBA og QPR gerðu 1-1 jafntefli í toppslag þar sem gestirnir komust yfir á 38. mínútu með klaufalegu sjálfsmarki. Markvörður WBA varði skot en boltinn skaust í bringuna á Chris Mepham og þaðan í eigið net.

Heimamenn svöruðu fljótt og það með glæsibrag. Callum Styles fékk boltann hægra megin við teiginn og skrúfaði hann neðst í vinstra hornið.

WBA var meira með boltann og fékk ágætis færi en tókst ekki að knýja fram sigur og ná toppsætinu. Liðið er í öðru sæti með 14 stig en QPR í fjórða sæti með tólf.

Derby County 1 - 2 Birmingham
1-0 Bobby Clark ('40 )
1-1 Carlos Vicente ('42 )
1-2 Paik Seung-Ho ('64 )

Bolton 0 - 0 Cardiff City
1-0 Thierry Gale ('90 )

West Brom 1 - 1 QPR
0-1 Chris Mepham ('38 , sjálfsmark)
1-1 Callum Styles ('41 )

Championship - karlar

#LiðLmunStig
1Swansea9+820
2Middlesbrough9+518
3West Ham9+1116
4Stoke City9+216
5Wolves8+414
6QPR9+314
7Birmingham9+214
8Millwall9+114
9West Brom9+114
10Bristol City9-114
11Southampton9+1013
12Charlton Athletic9-313
13Blackburn9+112
14Sheffield Utd9+112
15Wrexham9-311
16Lincoln City9-411
17Bolton9-510
18Norwich9-29
19Portsmouth8-28
20Watford9-78
21Cardiff City9-37
22Burnley9-47
23Derby County9-76
24Preston NE9-84
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.