Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 16. október 2020 10:40
Elvar Geir Magnússon
Leeds lánar Douglas til Blackburn (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Leeds United hefur lánað skoska vinstri bakvörðinn Barry Douglas til Blackburn Rovers í Championship-deildinni.

Douglas er 31 árs og hefur leikið 42 leiki fyrir Leeds United síðan hann gekk í raðir félagsins frá Úlfunum. Hann hjálpaði liðinu að komast upp í ensku úrvalsdeildina á síðasta tímabili.

Douglas er ekki byrjunarliðsmaður hjá Leeds í dag og Marcelo Bielsa var tilbúinn að lána hann.

Blackburn hefur unnið tvo leiki og gert eitt jafntefli þegar fjórar umferðir eru búnar í Championship-deildinni.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner