Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 16. október 2021 20:36
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Myndband: Mendy kom í veg fyrir eitt af mörkum ársins
Edouard Mendy.
Edouard Mendy.
Mynd: Getty Images
Markvörðurinn Edouard Mendy átti stórleik þegar Chelsea lagði nýliða Brentford að velli í lokaleik dagsins í ensku úrvalsdeildinni.

Bakvörðurinn Ben Chilwell kom Chelsea yfir undir lok fyrri hálfleiks og reyndist það sigurmarkið í leiknum.

Brentford pressaði á Chelsea síðustu mínúturnar og voru grátlega nálægt því að jafna. Ivan Toney átti fyrirgjöf á Samon Ghoddos en Mendy varði og svo bjargaði Trevor Chalobah á línu eftir skot frá Christian Norgaard.

Mendy varði aftur þremur mínútum síðar eftir skot frá Pontus Jansson. Brentford hélt áfram að pressa og var Norgaard nálægt því að skora eitt af mörkum ársins er hann reyndi bakfallsspyrnu en aftur varði Mendy.

Frábær markvarsla eftir mjög skemmtilega tilraun. Hægt er að sjá myndband af þessari tilraun og markvörslunni með því að smella hérna.

Leikmenn og starfsmenn mega svo sannarlega klappa Mendy á bakið fyrir hans frammistöðu í kvöld.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner