Fotbolti.net
16.11.13 - 16:00
Brynjar Ingi Erluson

Hafþór Mar Aðalgeirsson í Fram (Staðfest)

Hafþór Mar og Bjarni Guðjónsson, þjálfari liðsins við undirskrift í dag

Hafþór Mar og Bjarni Guðjónsson, þjálfari liðsins við undirskrift í dag

Canon

Mynd: Fram

Pepsi-deildarlið Fram hefur fengið Hafþór Mar Aðalgeirsson frá Völsungi, en hann gerir þriggja ára samning við félagið. Þetta kemur fram á heimasíðu félagsins í dag.
Hafþór Mar, sem er 19 ára gamall miðju- og kantmaður, kemur frá Völsungi, en hann er uppalinn hjá Húsavíkurliðinu.

Hann gerði sjö mörk í fimmtán deildarleikjum fyrir Völsung í fyrstu deildinni í sumar, en hann hefur verið lykilmaður liðsins undanfarin ár.

Völsungur féll niður í 2. deild eftir tímabilið og ljóst var að leikmaðurinn yrði eftirsóttu, en Fram tókst að krækja í hann og gerði hann þriggja ára samning við Safamýrarliðið. Hann á í heildina 69 leiki að baki í deild og bikar, þar sem hann hefur gert 23 mörk.

Þá á hann einnig að baki landsleiki fyrir U17 og U19 ára landslið Íslands, en félagið hefur þegar fengið Tryggva Bjarnason, Ásgeir Marteinsson, Ósvald Jarl Traustason, Einar Bjarna Ómarsson, Einar Má Þórisson, Hafstein Briem, Guðmund Stein Hafsteinsson og Alexander Má Þorláksson.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.