16.11.15 - 12:34
Hafliði Breiðfjörð
Emil Atlason í Þrótt (Staðfest)

Emil ásamt Per Rud yfirmanni knattspyrnumála Þróttar í dag.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þróttur boðaði til fréttamannafundar í hádeginu þar sem félagið tilkynnti að Emil Atlason sé genginn í raðir félagsins. Emil lék með Val á láni frá KR í sumar.
Þróttur vann sér sæti í Pepsi-deild karla í sumar en Emil er fyrsti leikmaðurinn sem gengur í raðir félagsins síðan tímabilinu lauk.
Atli Eðvaldsson faðir hans þjálfaði Þrótt fyrir nokkrum árum.

Emil er uppalinn hjá FH en gekk svo í raðir KR þar sem hann lék allan sinn meistaraflokksferil hér á landi þar itl hann var lánaður til Vals.
Hjá Val skoraði hann tvö mörk í átta leikjum í sumar en hjá KR skoraði Emil tólf mörk í 63 leikjum í deild og bikar.
Emil er sem fyrr segir fyrsti leikmaðurinn sem Þróttur fær í sínar raðir í haust, og mun leysa stöðu Viktors Jónssonar í framlínunni en hann er snúinn aftur í Víking úr láni.
Þá hefur Þróttur misst þá Alexander Veigar Þórarinsson, Hlyn Hauksson og Jón Arnar Barðdal.