Fotbolti.net
16.11.21 - 16:07
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Sindri Snær snýr aftur til Keflavíkur (Staðfest)

Sindri í leik með Keflavík tímabilið 2014.

Sindri í leik með Keflavík tímabilið 2014.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sindri Snær Magnússon er genginn í raðir Keflavíkur og skrifar undir þriggja ára samning við félagið.

Sindri kemur frá ÍA þar sem hann lék síðustu þrjú tímabil. Sindri hefur áður leikið með Keflavík en hann var leikmaður félagsins árin 2014 og 2015. Eftir það gekk Sindri til liðs við ÍBV og fór svo í ÍA. Samningur Sindra við ÍA var útrunninn og var honum því frjálst að semja við annað félag.
„Sindri Snær kemur með dýrmæta reynslu inní liðið okkar sem er ungt og mun leika í deild þeirra bestu að ári. Mikils er vænst af Sindra Snæ sem mun styrkja liðið okkar mikið og viljum við bjóða hann hjartanlega velkominn aftur til Keflavíkur og hlökkum til að sjá hann á vellinum!" segir í tilkynningu Keflavíkur.

Sindri hefur skorað tuttugu mörk í tæplega 250 keppnisleikjum á ferlinum. Hann skoraði eitt mark í fjórtán leikjum með ÍA í sumar en hann glímdi við meiðsli um mitt sumar og missti því úr nokkra leiki.

Sindri er uppalinn í ÍR en hefur einnig leikið með Breiðablik og Selfossi ásamt þeim liðum sem þegar hafa verið nefnd.
Svona lítur kappinn út í dag.

Svona lítur kappinn út í dag.

Canon

Mynd: Keflavík

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.