16.11.26 - 19:52
Brynjar Ingi Erluson
U21: EM-draumurinn úti eftir grátlegt tap í Aþenu

Ísland tapaði eftir vítakeppni

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Daníel Tristan skoraði eina mark Ísland með hörkuskoti fyrir utan teig

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Ísland tapaði eftir vítakeppni

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Grikkland U21 1 - 1 Ísland U21 (5-4 eftir vítakeppni)
0-1 Daníel Tristan Guðjohnsen ('72 )
1-1 Konstantinos Kostoulas ('90 )
Lestu um leikinn
0-1 Daníel Tristan Guðjohnsen ('72 )
1-1 Konstantinos Kostoulas ('90 )
Lestu um leikinn
Íslenska U21 árs landsliðið fer ekki á Evrópumótið í Albaníu og Serbíu á næsta ári, en það varð ljóst eftir grátlegt tap gegn Grikkjum í vítakeppni í Aþenu í kvöld.
Grikkir voru ein sterkasta þjóðin í undankeppninni og það var eiginlega með ólíkindum að þeim skyldi ekki takast að tryggja sér sæti á mótinu með beinum hætti.
Þeir enduðu í öðru sæti síns riðils með 27 stig, sem hefði undir venjulegum kringumstæðum átt að duga til að komast beint áfram. Þjóðverjar náðu hins vegar sama stigafjölda og tryggðu sér toppsætið.
Grikkir þurftu því að fara í umspil gegn Íslandi sem hafði einnig hafnað í öðru sæti síns riðils.
Fyrri leiknum hér heima lauk með 1-1 jafntefli og var allt í járnum í Aþenu í kvöld. Bæði lið fengu sín færi í fyrri hálfleiknum en ekkert mark leit dagsins ljós og var því markalaust þegar gengið var til búningsherbergja.
Þegar um tuttugu mínútur voru eftir dró hins vegar heldur betur til tíðinda. Daníel Tristan Guðjohnsen fékk þá boltann rétt fyrir utan vítateiginn, lét vaða og sendi hann glæsilega í fjærhornið.
Stórkostlegt mark hjá Daníel sem komst þar með á skotskóna, rétt eins og bróðir hans, Andri Lucas, hafði gert með A-landsliðinu í kvöld.
Íslenska liðið lagði nú allt kapp á að halda forystunni og var komið á barmi þess að tryggja sér sæti á EM þegar þungt högg reið yfir. Tæp mínúta var liðin af uppbótartímanum þegar Kostas Koustoulas jafnaði metin fyrir Grikki.
Fyrirgjöf kom frá vinstri og boltinn var skallaður yfir á fjærstöngina þar sem Koustoulas var einn og óvaldaður. Hann skallaði boltann í netið og tryggði Grikkjum framlengingu.
Undir lok fyrri hálfleiks framlengingarinnar gerðust síðan hreint ótrúlegir hlutir þegar Ísland fékk hvert dauðafærið á fætur öðru.
Ágúst Orri Þorsteinsson átti fyrst vippu sem fór í þverslána og Hilmir Rafn Mikaelsson náði á einhvern ótrúlegan hátt ekki að pota boltanum í netið. Daníel Freyr Kristjánsson átti því næst skot í varnarmann og þaðan barst boltinn til Hauks Andra Haraldssonar sem náði skoti á markið, en markvörður Grikkja varði með tánni.
Grikkir sluppu þarna heldur betur með skrekkinn og flautað var til hálfleiks í framlengingunni.
Heimamenn sóttu mikið í síðari hálfleiknum en tókst ekki að skora sigurmarkið og því þurfti vítakeppni til að skera úr um hvort Ísland eða Grikkland færi á Evrópumótið í Albaníu og Serbíu.
Nikolaos Botis, markvörður Grikkja, varði fyrstu spyrnu Íslands frá Viktori Bjarka Daðasyni og reyndist það dýrkeypt. Bæði lið skoruðu úr öllum öðrum spyrnum sínum og því voru það Grikkir sem fögnuðu sæti á EM á meðan Íslendingar sátu eftir með sárt ennið.
Grátleg niðurstaða fyrir íslenska liðið sem var svo ótrúlega nálægt því að tryggja sér sæti á Evrópumótinu í þriðja sinn í sögunni.
Vítakeppnin:
0-0 Botis ver frá Viktori Bjarka
1-0 Anestis Mythou
1-1 Hilmir Rafn Mikaelsson
2-1 Georgios Koutsias
2-2 Hlynur Freyr Karlsson
3-2 Kostas Kostoulas
3-3 Galdur Guðmundsson
4-3 Dimitrios Kaloskamis
4-4 Haukur Andri Haraldsson
5-4 Christos Mouzakitis