16.12.13 - 20:00
Ívan Guðjón Baldursson
Djukic hættur með Valencia (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Miroslav Djukic er ekki lengur þjálfari Valencia sem gerir Nicolas Estevez að bráðabirgðaþjálfara liðsins.
Djukic er 47 ára gamall og var leikmaður Valencia í sex ár þar sem hann lék sem varnarmaður.

Serbinn hafði stýrt Hercules og Real Valladolid í spænska boltanum áður en hann tók við Valencia.
Djukic var látinn fara eftir slæma byrjun á tímabilinu, en liðið er með 20 stig eftir 16 umferðir og dúsir í níunda sæti deildarinnar, tíu stigum frá meistaradeildarbaráttunni.
,,Mér hefur ekki tekist að koma Valencia á þann stað sem ég sagðist ætla að koma liðinu á þegar ég tók við, þannig að slæmt gengi er mér að kenna,\" sagði Djukic.
Valencia er þó komið í 32-liða úrslit Evrópudeildarinnar og mætir þar úkraínska stórliðinu Dynamo Kiev.

Heimild: Sky Sports