Fotbolti.net
16.12.13 - 14:33
Brynjar Ingi Erluson
Ítalska deildin

Fyrrum þjálfari U21 árs landsliðs Ítalíu tekinn við Spezia (Staðfest)

Devis Mangia

Devis Mangia

Canon

Mynd: Getty Images

AC Spezia í Seríu B á Ítalíu hefur ráðið nýjan þjálfara einungis tveimur dögum eftir að hafa látið Giovanni Stroppa taka poka sinn en Devis Mangia, fyrrum landsliðsþjálfari U21 árs landsliðs Ítalíu hefur verið ráðinn þjálfari liðsins.
Stroppa var látinn taka poka sinn á laugardag eftir 4-0 tap gegn Varese en liðið situr í ellefta sæti deildarinnar með 24 stig og taldi stjórn félagsins Stroppa ekki rétta manninn til þess að leiða liðið áfram.

Mangia, sem stýrði ítalska U21 árs landsliðinu í úrslitaleik EM í sumar, er tekinn við liðinu en þetta kemur fram á heimasíðu félagsins í dag. Samningurinn er að öllum líkindum út tímabilið með möguleika á framlengingu um eitt ár.

Hann hætti með U21 árs landsliðið eftir Evrópumótið í sumar en hann hefur verið án starfs síðan þá.

Þá hefur félagið ráðið nýjan framkvæmdastjóra en hinn afar reyndi Umberto Marino tekur við stöðunni. Hann hefur sinnt sömu stöðu hjá Internazionale, Sampdoria og AS Roma meðal annars.

Hörður Björgvin Magnússon er á mála hjá Spezia en félagið á 50 prósent hlut í honum á móti Juventus.

Hann gekk til liðs við félagið í sumar en hann hefur þegar leikið sex leiki. Hans síðasta leikur fyrir félagið var 1. nóvember í 1-0 tapi gegn Padova.

Hörður er þá mikilvægur partur af U21 árs landsliði Íslands sem hefur vegnað vel í undankeppni EM og situr liðið í öðru sæti riðilsins með 12 stig.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.