16.12.13 - 07:00
Magnús Már Einarsson
Pétur Már í Gróttu (Staðfest)

Pétur Már Harðarson.

Mynd: Eyjólfur Garðarsson

Pétur Már Harðarson.

Mynd: Eyjólfur Garðarsson
Pétur Már Harðarson er genginn til liðs við uppeldisfélag sitt Gróttu eftir tveggja ára dvöl hjá Leikni í Breiðholti. Pétur, sem er 24 ára gamall, spilaði sinn fyrsta meistaraflokksleik 16 ára gamall en síðan þá hefur hann leikið með Bröndby í Danmörku, KR og nú síðast Leikni.
Pétur var einnig á mála hjá Gróttu frá 2009-2011 þar sem hann hjálpaði Seltirningum að sigra 2. deildina og var lykilmaður hjá liðinu tvö ár í 1. deildinni.
Haustið 2011 færði hann sig um set til Leiknis í Breiðholti og lék þar í tvö ár. Fyrra tímabil Péturs hjá Leikni var ágætt en í sumar glímdi hann við erfið meiðsli og spilaði ekki leik í 1. deildinni.
,,Það er gaman að vera kominn aftur í Gróttu. Þetta lið er í sókn og það eru spennandi tímar framundan á Nesinu,\" sagði Pétur í viðtali við Gróttublaðið sem nýlega kom út.
,,Mér líst vel á þjálfarana og hvað þeir eru að hugsa. Fyrst og fremst hlakka ég til að spila fótbolta aftur eftir löng meiðsli og get ég ekki beðið eftir því að hlaupa út á Gróttuvöllinn í sumar, vonandi með fulla stúku að hvetja okkur áfram.\"
Þá hefur varnarmaðurinn og fyrirliði Gróttumanna, Guðmundur Marteinn Hannesson, skrifað undir nýjan samning við félagið. Guðmundur var kjörinn leikmaður ársins hjá Gróttu að tímabili loknu og var auk þess valinn í úrvalslið 2. deildarinnar.
Pétur Már á að baki 88 leiki fyrir meistaraflokk Gróttu en Guðmundur 106 leiki.

Heimild: Heimasíða Gróttu

Guðmundur Marteinn Hannesson.

Mynd: Eyjólfur Garðarsson