Fotbolti.net
16.12.15 - 15:20
Magnús Már Einarsson

Kristinn Steindórsson til GIF Sundsvall (Staðfest)

Kristinn er kominn aftur til Svíþjóðar.

Kristinn er kominn aftur til Svíþjóðar.

Canon

Mynd: Heimasíða Sundsvall

Kristinn Steindórsson hefur gengið til liðs við GIF Sundsvall í Svíþjóð en hann skrifaði undir þriggja ára samning við félagið.
Hinn 25 ára gamli Kristinn yfirgaf bandaríska félagið Columbus Crew á dögunum eftir eitt ár í herbúðum þess.

Kristinn var ekki sáttur við skort á tækifærum sem hann fékk hjá Columbus Crew þar sem hann var í mun minna hlutverki en hann reiknaði með.

Hann snýr núna aftur til Svíþjóðar þar sem hann spilaði með Halmstad frá 2012 til 2014.

„Ég fékk mjög jákvæða mynd af GIF Sundsvall frá fyrsta degi sem ég talaði við þjálfarana um hlutverk mitt,\" sagði Kristinn við heimasíðu Sundsvall.

„Væntingar mínar fyrir tímabilið er að spila mitt hlutverk vel og hjálpa liðinu að gera betur en á síðasta tímabili. Persónulega vil ég einnig komast á EM með íslenska landsliðinu.\"

Sundsvall hafnaði í 12. sæti af 16 liðum sænsku úrvalsdeildarinnar á liðnu tímabili.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.