Fotbolti.net
16.12.21 - 06:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

FH lánar Hauk í Þrótt Vogum (Staðfest)

FH lánar Hauk í Þrótt Vogum (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin
Haukur Leifur Eiríksson er genginn í raðir Þróttar Vogum á láni frá FH. Hann lék einnig með Þrótti á nýliðnu tímabili, 21 leik þegar Þróttarar unnu 2. deildina í sumar.

Hann mun því spila með Þrótti í Lengjudeildinni í sumar.
Haukur er nítján ára varnarmaður sem fyrr í dag framlengdi samning sinn við FH út tímabilið 2023.

„Við FH-ingar bindum vonir við að geti orðið fastamaður í FH-liðinu í framtíðinni. Félagið telur þetta vera rökrétt skref fyrir Hauk Leif á þessum tímapunkti, að fylgja Þrótturum upp um deild og halda áfram að þróast sem leikmaður í sterkari deild. Það er okkur einnig mikið fagnaðarefni að geta haldið áfram samstarfinu á milli okkar FH-inga og Þróttara, ótrúlega vel staðið að hlutunum hjá vinum okkar á Vatnsleysuströnd og frábær staður fyrir okkar ungu leikmenn í þróunarferlinu," segir í tilkynningu FH.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.