16.12.21 - 09:10
Elvar Geir Magnússon
Fleiri smit hjá Man Utd - „Hversu lengi getur þetta gengið svona?"

Vallargestir framvísa Covid gögnum fyrir utan Etihad leikvanginn í Manchester.

Mynd: EPA

Fyrir utan Emirates leikvanginn.

Mynd: Getty Images

Óvissa ríkir í ensku úrvalsdeildinni vegna fjölgunar Covid smita og það er strögl að halda keppni gangandi. Heimaleikur Burnley gegn Watford varð þriðji frestaði leikurinn á einni viku vegna ástandsins.
Hópsmit er í gangi hjá Watford og var ekki tilkynnt um frestun fyrr en um klukkan 17, þegar vallargestir voru byrjaðir að mæta og gera sig klára fyrir leikinn sem átti að vera 19:30.

Sífellt fleiri lið eru að lenda í vandræðum vegna smita og segir Guardian að Manchester United sé nú með um 20 smit í sínum herbúðum, hjá leikmönnum og starfsmönnum.
Leik United gegn Brentford sem átti að vera á þriðjudag var frestað og óvissa ríkir um leik gegn Brighton sem á að vera á laugardag. Félagið heldur ensku úrvalsdeildinni upplýstri um þróun mála hjá sér.
Leikur Leicester og Tottenham á að fara fram í kvöld þrátt fyrir að bæði félög hafi farið fram á að honum yrði frestað.
Tottenham er að jafna sig eftir hópsmit sem gerði það að verkum að leikjum gegn Rennes og Brighton var aflýst/frestað og Brendan Rodgers stjóri Leicester segir níu leikmenn sína fjarverandi vegna meiðsla og smita. Það er enginn miðvörður heill heilsu hjá liðinu.
Áhorfendabann eða keppni stöðvuð?
Graham Potter, stjóri Brighton, staðfesti eftir 1-0 tap gegn Wolves í gær að það væru nokkur Covid tilfelli í sínum leikmannahópi og að félagið hafi beðið um að leiknum yrði frestað.
„Við spurðum út í frestun vegna ástandsins. Eina sem þú getur gert er að koma málinu áfram, ræða við fólk og það tekur ákvörðun. Ég er ekki viss um hversu lengi við getum haldið áfram á þessari braut sem við erum á," segir Potter.
„Við viljum að fótboltinn haldi áfram og lífið sé sem eðlilegast en heilsan er það mikilvægasta. Hlutirnir hafa gerst hratt og ef þetta heldur áfram svona þá þarf alvarlega að skoða það að stöðva keppni."
Enska úrvalsdeildin er búin undir nýjar takmarkanir frá yfirvöldum og Dr Nikita Kanani, yfirmaður heilsugæslu Bretlands, hefur ýjað að því að fótbolti ætti að vera spilaður án áhorfenda.
„Mitt ráð er að ef þú ætlar að skella þér á leikvang um helgina farðu þá á leikvang þar sem verið er að bólusetja.... frekar en að fara til að horfa á leik," sagði hún.