16.12.21 - 20:21
Brynjar Ingi Erluson
Kenan Turudija í Grindavík (Staðfest)

Kenan Turudija og Alfreð Elías Jóhannsson við undirskrift

Mynd: Knattspyrnudeild Grindavíkur

Knattspyrnudeild Grindavíkur gekk í dag frá samkomulagi við Kenan Turudija og mun hann leika með liðinu í Lengjudeildinni á næsta tímabili.
Turudija er 31 árs gamall miðjumaður en hann kemur frá Selfossi eftir að hafa spilað þar síðustu fjögur tímabil.
Hann hefur einnig leikið með Víkingi Ólafsvík og Sindra en er nú mættur til Grindavíkur.
Turudija samdi við félagið um að spila með liðinu á næstu leiktíð í Lengjudeildinni. Hann á 192 leiki og 48 mörk að baki í deild- og bikar.
„Ég er mjög ánægður með að fá Kenan til liðs við okkur. Þetta er öflugur miðjumaður sem kemur með mikla reynslu inn í okkar lið."
„Kenan hefur verið lengi á Íslandi og þekkir íslenskan fótbolta vel. Hann hefur æft með okkur síðustu vikur og hefur komið mjög öflugur inn í okkar leikmannahóp. Ég er þess fullviss um að Kenan á eftir að gera góða hluti hér í Grindavík," sagði Alfreð Elías Jóhannsson, þjálfari liðsins, eftir að Kenan var kynntur.