Fotbolti.net
17.01.13 - 08:00
Fótbolti.net

Bergþóra Gná í HK/Víking (Staðfest)

Bergþóra í leik með Selfossi

Bergþóra í leik með Selfossi

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Gunnar Már Hauksson

Kvennaboltinn
HK/Víkingar halda áfram að styrkja sig fyrir komandi átök í Pepsi-deildinni en Bergþóra Gná Hannesdóttir er gengin til liðs við nýliðana.
Bergþóra er 22 ára gömul og uppalin hjá Val. Undanfarin tvö tímabil hefur hún leikið með Selfossi en fyrstu meistaraflokksleikina lék hún með Fram sumarið 2010.

Alls hefur Bergþóra leikið 9 leiki í efstu deild, 29 í 1. deild og þrjá bikarleiki og skorað í þeim fjögur mörk.

Bergþóra er þriðji leikmaðurinn sem HK/Víkingur fær til sín á nýju ári en þær Arna Ómarsdóttir og Íris Dóra Snorradóttir höfðu áður skrifað undir hjá liðinu.

Þær eru allar komnar með leikheimild og verða því löglegar þegar liðið mætir Val í Reykjavíkurmótinu á sunnudag.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.