17.01.13 - 14:00
Magnús Már Einarsson
Fertugur Rivaldo semur við Sao Caetano (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Hinn fertugi Rivaldo hefur samið við Sao Caetano sem leikur í næstefstu deild í Brasilíu.
Rivaldo kemur til Sao Caetano eftir að hafa yfirgefið herbúðir Kabuscorp í Angóla í lok síðasta árs.
,,Ég þakka guði fyrir að geta spilað í 40 ár. Ég fékk nokkur tilboð og ég er ánægður,\" sagði Rivaldo sjálfur á Twitter í gær.
Rivaldo átti farsælan feril í Evrópu en hann var meðal annars valinn besti leikmaður í heimi árið 1999. Þá varð hann heimsmeistari með liði Brasilíu árið 2002.
Hér að neðan má sjá nokkur falleg mörk hjá Rivaldo í leikjum með Barcelona á sínum tíma.

Heimild: Heimasíða FIFA