17.01.13 - 19:35
Elvar Geir Magnússon
Mikael Nikulásson ráðinn þjálfari Augnabliks (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Augnablik í 3. deildinni hefur ráðið þjálfara en Mikael Nikulásson er tekinn við liðinu. Frá þessu er greint í fréttatilkynningu frá félaginu.
Augnablik komst upp úr neðstu deild á síðasta tímabili og leikur í nýju 3. deildinni en eins og flestir vita verður 4. deild neðsta deild næsta sumar.

Samningur Mikaels er til eins árs.
Hann hefur reynslu úr þjálfun í neðri deildum og bindur stjórn Augnabliks miklar vonir við ráðningu Mikaels.
Mikael stýrði liði Núma í 3. deildinni hér á árum áður og þá stýrði hann liði ÍH frá 2006 til 2010.