Fotbolti.net
17.01.13 - 16:14
Magnús Már Einarsson

Quashie gerir þriggja ára samning BÍ/Bolungarvík (Staðfest)

Quashie gerir þriggja ára samning BÍ/Bolungarvík (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Kristján Orri Jóhannsson

Nigel Quashie hefur gengið til liðs við BÍ/Bolungarvík en hann skrifaði undir þriggja ára samning við félagið í dag.
Hinn 34 ára gamli Quashie komst að samkomulagi um starfslok hjá ÍR á dögunum en hann átti tvö og hálft ár eftir af samningi sínum við félagið.

Quashie var spilandi aðstoðarþjálfari hjá ÍR síðastliðið sumar en hann tók síðan við þjálfun liðsins af Andra Marteinssyni í ágúst. Quashie skoraði tvö mörk í tuttugu leikjum í fyrstu deildinni í fyrra.

Nokkur íslensk félög sýndu Quashie áhuga en hann hefur nú samið við BÍ/Bolungarvík og mun leika með liðinu í fyrstu deildinni í sumar.

Það vakti mikla athygli þegar Quashie gekk í raðir ÍR síðastliðið vor eftir langan feril á Englandi þar sem hann lék í úrvalsdeildinni og í Championship deildinni.

Í Englandi lék Quashie með QPR, Nottingham Forest, Portsmouth, Southampton, WBA, West Ham, Birmingham, Wolves og Milton Keynes Dons.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.