17.01.13 - 21:30
Sebastían Sævarsson Meyer
Stoke City lánar Maurice Edu til Tyrklands (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Stoke City hefur lánað miðjumanninn Maurice Edu til tyrkneska félagsins Bursaspor út tímabilið.
Þetta staðfesti Stoke á heimasíðu sinni í dag eftir að leikmaðurinn hafði flogið til Tyrklands í gær til að klára alla samninga.

Bandaríkjamanninum mistókst að festa sig í sessi í liði Stoke eftir að hafa komið frá Rangers á lokadegi félagskiptagluggans síðasta sumar.
Edu hefur aðeins komið einu sinni við sögu hjá Stoke en hann kom inn á sem varamaður í markalausu jafntefli gegn Liverpool í október.
Hjá Bursaspor mun þessi 26 ára miðjumaður fylla skarð Alfred N\'Diaye sem gekk til liðs við Sunderland í síðustu viku.