17.01.14 - 16:22
Magnús Már Einarsson
Mágur Luis Suarez í KV (Staðfest)

Balbi í æfingaleik með KR síðastliðið sumar.

Mynd: Heimasíða KR

KV er að fá liðsstyrk fyrir 1. deildina í sumar en Gonzalo Balbi er á leið til félagsins. Þetta staðfesti Páll Kristjánsson þjálfari KV við Fótbolta.net í dag.
Balbi er mágur Luis Suarez leikmanns Liverpool en hann dvaldi hér á landi síðastliðið sumar.
Þá æfði hann með KR og virtist ætla að ganga til liðs við Íslandsmeistarana í júlí en á endanum náðist ekki að ganga frá leikheimild fyrir hann.
Balbi getur leikið bæði sem bakvörður og á miðjunni en hann er 21 árs gamall.
Balbi var valinn í Nike Football Academy leiktíðina 2011-2012. Í akademíunni voru 16 leikmenn.
Þeir voru valdir úr 100 leikmanna hópi sem æfði í Barcelona í hitteðfyrra en upphaflega sóttust um 150 milljón leikmenn um allan heim að komast í akademíuna.