Fotbolti.net
17.01.14 - 10:22
Magnús Már Einarsson

Ryan Bertrand til Aston Villa (Staðfest)

Ryan Bertrand til Aston Villa (Staðfest)
Canon

Mynd: Heimasíða Aston Villa

Aston Villa hefur fengið bakvörðinn Ryan Bertrand á láni frá Chelsea út tímabilið.

Þessi 24 ára gamli leikmaður á 56 leiki að baki með Chelsea en hann kom meðal annars við sögu í úrslitaleik Meistaradeildarinnar árið 2012.

<i>,,Ryan kemur með mikla reynslu af stórum leikjum, ekki bara úr ensku úrvalsdeildinni heldur líka úr úrslitaleik Meistaradeildarinnar þar sem Chelsea vann. Hann mun nýtast okkur mjög vel,\"</I> sagði Paul Lambert stjóri Villa.
Bertrand hefur áður verið á láni hjá Bournemouth, Oldham Athletic, Norwich City, Reading og Nottingham Forest á ferli sínum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.