Fotbolti.net
17.01.14 - 13:28
Gunnar Már Hauksson

Shane Long til Hull (Staðfest)

Shane Long

Shane Long

Canon

Mynd: Getty Images

Hull City Tigers gekk í dag frá kaupum á framherjanum Shane Long frá West Brom Albions. Kaupverð leikmannsins hefur ekki verið gefið upp en það er talið geta náð allt að 7 milljónum punda.

Hinn 26 ára framherji skrifaði undir þriggja ára samning en hann skoraði 22 mörk í 87 leikjum fyrir West Brom.
Þetta eru önnur kaup Hull í vikunni en liðið fékk Nikica Jelavic á Miðvikudag frá Everton.

,,Þetta er lið á uppleið og ég er ánægður að vera hluti af því. Ég fékk loksins að ganga til liðs við liðið,\" sagði Long á blaðamannafundi í dag. Leikmaðurinn var nálægt því að ganga til liðs við Hull á lokadegi félagsskiptagluggans í september.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.