Fotbolti.net
17.01.16 - 07:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Hugo Almeida til Hannover (Staðfest)

Almeida er kominn til Hannover

Almeida er kominn til Hannover

Canon

Mynd: Getty Images

Kvennalandslið
Þýska úrvalsdeildarliðið, Hannover 69, hefur samið við portúgalska framherjann, Hugo Almeida.

Almeida var án liðs, en hann lék síðast Anzhi í Rússlandi þar sem samningi hans var rift eftir aðeins sex mánuði.
Hann hefur áður leikið undir stjórn Thomas Schaaf, en það gerði hann hjá Werder Bremen frá 2007-2010.

\"Ég stökk á tækifærið þegar ég fékk þetta áhugaverða tilboð. Þegar stjórinn hringdi, sagði ég já strax. Ég missti aldrei sjónar á Bundesligunni og langaði alltaf að koma aftur,\" sagði Almeida.

Hannover er í fallsæti þegar Bundesligan er hálfnuð, en liðið er einu stigi frá neðsta sæti deildarinnar og líka aðeins einu stigi frá öruggu sæti.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.