17.01.16 - 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Luis Garcia í áströlsku úrvalsdeildina (Staðfest)

Luis Garcia fagnar hér marki með Liverpool á sínum tíma

Mynd: Getty Images

Luis Garcia, fyrrum leikmaður Liverpool, er kominn til Ástralíu og hefur þar samið við Central Coast Mariners.
Central Coast tilkynnti um kaupin í hálfleik gegn Adelaide United í gær, en Garcia lék síðast með Atlético Kolkata á Indlandi árið 2014.

Central Coast Mariners eru aðeins búnir að vinna tvo af 14 leikjum sínum og því mun félagið vonast til þess að hinn 37 ára gamli Garcia muni styrkja liðið eitthvað.
\"Ég er gríðarlega ánægður með það að vera ganga til liðs við lið eins og Central Coast Mariners. Það er spennandi verkefni að spila í áströlsku úrvalsdeildinni og hjá liði eins og Mariners,\" sagði Garcia.
\"Mér hlakkar til að koma til félagsins, hitta liðsfélaga mína, hitta stuðningsmennina og skemmta þeim.\"
Garcia gæti spilað sinn fyrsta leik fyrir Central Coast Mariners þegar liðið heimsækir Western Sidney Wanderes á laugardaginn næsta.