Hinir efnilegu Sigurður Dagsson og Kristján Hjörvar Sigurkarlsson eru búnir að skrifa undir samninga við Íslandsmeistara Vals.
Siggi Dags kemur úr mikilli Valsfjölskyldu og er skírður í höfuðið á afa sínum sem er goðsögn hjá Val.
Siggi er 18 ára gamall og hefur spilað einn keppnisleik með meistaraflokki Vals, í Pepsi Max-deildinni í fyrra. Hann á sex leiki að baki fyrir meistaraflokk KH og á þrjá leiki að baki fyrir U16 landslið Íslands.
Siggi spilaði í fyrsta leik Reykjavíkurmótsins í gær og skoraði eitt marka Vals í góðum sigri.
Kristján Hjörvar er efnilegur markvörður sem hefur æft og spilað með Val frá því í 7. flokki.
Kristján þykir mikið efni en hann er aðeins 15 ára gamall og leikur bæði með 2. og 3. flokk Vals.
Athugasemdir