Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 17. janúar 2022 12:20
Elvar Geir Magnússon
Chiquinho í læknisskoðun hjá Wolves
Chiquinho.
Chiquinho.
Mynd: Getty Images
Úlfarnir eru að kaupa portúgalska vængmanninn Chiquinho frá portúgalska félaginu Estoril fyrir 3 milljónir punda.

Þessi 21 árs leikmaður er í læknisskoðun hjá Wolves og gengur í kjölfarið frá langtímasamningi.

Chiquinho var í yngri liðum Sporting Lissabon en hann gekk í raðir Estoril árið 2019. Hann hefur vakið athygli fyrir frammistöðu liðsins sem er óvænt í sjötta sæti portúgölsku deildarinnar.

Hann hefur skorað þrjú mörk í fimmtán leikjum á tímabilinu. Mögulegt er að Wolves muni lána hann til að byrja með.

Tottenham gæti reynt að fá spænska vængmanninn Adama Traore frá Úlfunum í þessum mánuði.
Athugasemdir
banner
banner