Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 17. janúar 2022 16:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
„Ég get lofað þér því að þeir eru ekki á Skaganum"
Miðjumaðurinn Christian Köhler
Miðjumaðurinn Christian Köhler
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hjörvar Hafliðason, þáttarstjórnandi Dr. Football ræddi um þá Christian Köhler og Johannes Vall í þætti gærdagsins.

Þeir Köhler og Vall eru báðir fyrrum leikmenn Vals og sagði Hjörvar að þeir hefðu sést á Akranesi um liðna helgi.

Fréttaritari ræddi við Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfara ÍA, í dag og spurði meðal annars út í tvíeykið.

„Ég heyrði af þessum ummælum. Þeir eru ekki að æfa með okkur á Skaganum. Hjörvar sagði að sést hefði til þeirra á Skaganum. Ég get lofað þér því að þeir eru ekki á Skaganum," sagði Jói Kalli.

Hafiði eitthvað heyrt í þeim?

„Við erum að skoða hvernig við getum styrkt okkur, erum að vinna í því. Mér finnst þeir báðir hörkuleikmenn. Við erum bara að skoða okkar mál, hvernig við getum styrkt okkur," sagði Jói Kalli.

Hér að neðan má sjá viðtal við þjálfarann frá því á laugardag.
Jói Kalli: Gott að koma til baka eftir rasskellingu á móti Stjörnunni
Athugasemdir
banner
banner