Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 17. janúar 2022 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Southampton í viðræðum við Chelsea um Broja
Armando Broja.
Armando Broja.
Mynd: Southampton
Southampton er í viðræðum við Chelsea um kaup á sóknarmanninum Armando Broja.

Þetta kemur fram hjá Guardian.

Broja er núna á láni hjá Southampton og hefur heillað með frammistöðu sinni. Hann er búinn að skora fimm deildarmörk og Dýrlingarnir vilja ganga frá kaupum á honum.

Broja var á síðasta ári á láni hjá Vitesse í Hollandi. Hann kom í gegnum akademíuna hjá Chelsea. Hann spilaði sinn fyrsta leik fyrir aðallið félagsins í mars 2020 og er með samning til ársins 2026.

Það er möguleiki að Thomas Tuchel, stjóri Chelsea, muni gefa honum tækifæri á næstu leiktíð - ef hann verður enn leikmaður liðsins. Það hefur vantað stöðugleika hjá framherjum Chelsea og því gæti félagið hikað með sölu á Broja. Þetta á eftir að koma í ljós á næstu dögum.
Athugasemdir
banner