Fotbolti.net
17.02.13 - 08:15
Hafliði Breiðfjörð

Hlíf Hauksdóttir í Val (Staðfest)

Hlíf fagnar marki með ÍBV.

Hlíf fagnar marki með ÍBV.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Hlíf Hauksdóttir er gengin til liðs við Val frá ÍBV og hefur þegar fengið leikheimild með sínu nýja félagi.
Hlíf sem er 23 ára gömul spilaði 15 leiki með ÍBV í deild og bikar í sumar og skoraði í þeim tvö mörk.

Hún hefur spilað með ÍBV síðan sumarið 2009, samtals 72 leiki í deild og bikar og skoraði í þeim 25 mörk.

Hún hóf meistaraflokksferil sinn með Fylki sumarið 2007 þegar hún spilaði fimm leiki í deild og bikar.

Hún er uppalin hjá KFR en var hjá Val með hléum frá haustinu 2005 til ársins 2009 er hún fór í ÍBV.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.