Fotbolti.net
17.02.13 - 09:20
Hafliði Breiðfjörð

Rafn Markús og Lúkas til Njarðvíkur frá Keflavík (Staðfest)

Rafn Markús Vilbergsson ásamt Ólafi Thordersen og Arngrími Guðmundssyni við undirskriftina.

Rafn Markús Vilbergsson ásamt Ólafi Thordersen og Arngrími Guðmundssyni við undirskriftina.

Canon

Mynd: Njarðvík

Tveir leikmenn hafa gengið formlega til liðs við Njarðvík á ný, þeir Rafn Markús Vilbergsson og Lúkas Malesa en þetta var staðfest á vef Njarðvíkur í gær.
Rafn sem kom upphaflega til Njarðvíkur árið 2005 frá Víði Garði fór í lok júlí síðastliðið sumar yfir til Keflavíkur og spilaði með þeim 6 leiki og skoraði 1 mark í Pepsi-deildinni.

Rafn hefur spilað og æft með Njarðvík í vetur en hann er einn leikreyndasti leikmaður liðsins í dag með alls 145 leiki og 50 mörk.

Þá skrifaði Lúkas Malesa undir tveggja ára samning en hann kemur einnig frá Keflavík. Lúkas sem er af pólskum ættum fluttist ungur til Íslands og var hjá Njarðvík í yngri flokkum upp í 3. flokk. Hann hefur verið að spila og æfa hjá Njarvðik að undanförnu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.