17.02.14 - 17:42
Elvar Geir Magnússon
Mirka Slomka tekinn við Hamburg (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images

Hamburg hefur ráðið Mirko Slomka, fyrrum þjálfara Hannover, sem nýjan þjálfara sinn. Þessi 46 ára maður hefur skrifað undir samning til tveggja og hálfs árs.
Bert Van Marwijk var rekinn um helgina eftir aðeins 143 daga í starfi.
Bert Van Marwijk var rekinn um helgina eftir aðeins 143 daga í starfi.
Hamburg hefur aldrei fallið úr þýsku úrvalsdeildinni en er sem stendur í fallsæti. Verkefni Slomka verður því að reyna að bjarga liðinu frá falli.
Fyrsti leikur hans við stjórnvölinn verður enginn barnaleikur, hann er gegn Borussia Dortmund.
Fyrsti leikur hans við stjórnvölinn verður enginn barnaleikur, hann er gegn Borussia Dortmund.
