17.02.16 - 19:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Celtic nælir í bráðefnilegan Norðmann (Staðfest)

Kristoffer Ajer er genginn til liðs við Celtic

Mynd: Celtic

Kristoffer Ajer, bráðefnilegur norskur miðjumaður, er genginn í raðir skoska stórveldisins Celtic.
Hinn 17 ára gamli Ajer kemur til Celtic frá Start í Noregi, en þar mun hann leika áfram fram í júní.

Ajer skrifaði undir fjögurra ára samning við Celtic, en þrátt fyrir ungan aldur hefur hann leikið 40 aðalliðsleiki fyrir Start og skorað 13 mörk.
Hann hafði verið á reynslu hjá Celtic í janúar, en hann flaug til Skotlands frá Alicante, þar sem hann hafði verið í æfingabúðum. Hann var að vonum ánægður þegar hann lenti í Glasgow.
\"Ég er mjög ánægður. Ég hafði gaman af því að vera hérna síðast og ég er spenntur fyrir framtíðinni hjá Celtic,\" sagði Ajer.