17.02.16 - 07:00
Óðinn Svan Óðinsson
Viktor Már Jónasson í Dalvík/Reyni (Staðfest)

Viktor Már Jónasson

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Miðjumaðurinn reyndi Viktor Már Jónasson hefur gengið aftur í raðir Dalvíkur/Reynis.
Viktor sem er uppalinn hjá Dalvík/Reyni kemur frá Skallagrím en hann spilaði 12 leiki fyrir Skallagrímsmenn síðasta sumar.
Ljóst er að þetta er gríðarlega góður liðsstyrkur fyrir Dalvíkinga en Viktor hefur spilað yfir 100 leiki fyrir félagið.

Dalvík/Reynir féll úr 2. deildinni síðastliðið sumar og leikur því í 3. deild á næstu leiktíð.
\"Við erum gríðarlega ánægðir með að fá Viktor til baka og það var eitt okkar helsta markmið í leikmannamálum. Viktor kemur með Dalvíkur hjarta inní liðið ásamt gríðarlegri reynslu og hæfileikum! 183 leikir í meistaraflokki segir sitt og reynsla sem okkur vantaði í hópinn,” sagði Jóhann Már framkvæmdarstjóri Dalvíkur Reynis á heimasíðu félagsins.