Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 17. febrúar 2020 15:05
Magnús Már Einarsson
Felix og Trippier ekki með gegn Liverpool - Diego Costa klár?
Diego Costa.
Diego Costa.
Mynd: Getty Images
Liverpool heimsækir Atletico Madrid í fyrri leik liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar annað kvöld.

Diego Costa æfði með Atletico Madrid í dag en hann hefur verið frá keppni síðan hann fór í aðgerð á baki í nóvember.

Costa gæti snúið aftur á völlinn á morgun og sömu sögu er að segja af varnarmanninum Jose Gimenez sem hefur verið að glíma við meiðsli.

Joao Felix og Kieran Trippier verða væntanlega ekki með vegna meiðsla.

Felix hefur misst af síðustu þremur leikjum vegna meiðsla en Trippier hefur ekki spilað í rúman mánuð.
Athugasemdir
banner