Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 17. febrúar 2020 12:00
Magnús Már Einarsson
Solskjær: Áskorun fyrir Pogba að komast í form
Mynd: Getty Images
„Paul (Pogba) veit að hann þarf að leggja hart að sér til að komast aftur í sitt besta form," sagði Ole Gunnar Solskjær, stjóri Manchester United í gær.

Pogba hefur einungis leikið átta leiki á tímabilinu en ökklameiðsli hafa sett stórt strik í reikninginn hjá honum.

„Hann hefur verið frá keppni í langan tíma og það er áskorun fyrir hann að komast aftur í form," sagði Solskjær en Pogba spilaði síðast í desember.

Pogba er sagður vilja fara en aðspurður hvort að hann muni spila meira með United á þessu tímabili sagði hann: „Auðvitað. Ég vil segja að um leið og hann verður heill þá verður hann nógu góður til að spila fyrir liðið. Ég er viss um að Paul vill ólmur spila fyrir okkur aftur."
Athugasemdir
banner
banner