Fotbolti.net
17.02.22 - 12:50
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Árni Þór og Rúrik Gunnars í KV (Staðfest)

Rúrik Gunnarsson

Rúrik Gunnarsson

Canon

Mynd: KR

Lengjudeildin
KV heldur áfram að þétta raðirnar fyrir komandi átök í Lengjudeildinni. Á dögunum greindum við frá því að félagið hefði fengið unga og <a href="https://www.fotbolti.net/news/14-02-2022/kr-lanar-efnilega-leikmenn-i-kv-stadfest" target="_blank">efnilega leikmenn að láni frá KR.</a>
KV fékk einn KR-ing í viðbót á láni en það er Rúrik Gunnarsson sem gekk í raðir KR frá Breiðabliki í vetur. Rúrik er fæddur árið 2005 og á að baki fjóra leiki fyrir U17 ára landsliðið.

Þá er Árni Þór Jakobsson búinn að fá félagaskipti í KV en hann lék með KV árið 2015. Síðan hefur hann leikið með ÍR og Þrótti Reykjavík. Árni er fæddur árið 1995.

Þá hefur Einar Tómas Sveinbjarnarson einnig skipt í KV en hann lék bæði með Kríu og KV síðasta sumar. Einar er uppalinn í Gróttu og er fæddur árið 1999.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.