Fotbolti.net
17.02.22 - 16:19
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Birkir Hauks í Magna (Staðfest)

Birkir Hauks í Magna (Staðfest)
Canon

Mynd: Magni

Birkir Már Hauksson hefur gengið til liðs við Magna Grenivík.

<i>„Fræs eins og hann er kallaður er grjótharður vinstri bakvörður sem hefur æft með liðinu í vetur og eru það gleðitíðindi að hann skuli skrifa undir 2 ára samning við félagið,"</I> segir í tilkynningu Magna.

Hann kemur frá KF en er uppalinn í Þór.
Birkir lék sextán leiki með KF í fyrra og tímabilið 2020 lék hann tíu leiki með Vængjum Júpíters.

Hann er fæddur árið 1999 og mun koma til með að styrkja leikmannahóp Magna sem undirbýr sig fyrir komandi átök í 2. deild.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.