Fotbolti.net
17.02.22 - 10:12
Elvar Geir Magnússon

Helena Ósk í Breiðablik (Staðfest)

Helena Ósk í Breiðablik (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Helena Ósk Hálfdánardóttir er gengin í raðir Breiðabliks og hefur skrifað undir tveggja ára samning í Kópavoginum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Breiðabliki.
Helena er 21 árs gömul og er uppalin hjá FH en lék með Fylki í Pepsi Max deildinni síðastliðið sumar.

Helena er sóknarsinnaður leikmaður sem þrátt fyrir ungan aldur á að baki 72 leiki í efstu deild og hefur skorað í þeim níu mörk. Hún hefur leikið 23 landsleiki fyrir yngri landslið Íslands og hefur skorað í þeim fjögur mörk.

„Það verður spennandi að fylgjast með þessum efnilega leikmanni í grænu treyjunni í sumar. Velkomin í Breiðabliksfjölskylduna Helena Ósk," segir í tilkynningu frá bikarmeisturunum.

Breiðablik hafnaði í öðru sæti efstu deildar kvenna í fyrra og vann bikarmeistaratitilinn.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.