Fotbolti.net
17.02.22 - 17:20
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Jörgen Pettersen áfram hjá ÍR (Staðfest)

Jörgen Pettersen áfram hjá ÍR (Staðfest)
Canon

Mynd: ÍR

ÍR greindi frá því fyrr í dag að Jörgen Pettersen (1997) yrði áfram hjá félaginu og lék því með liði þess í 2. deild í sumar.

Norðamaðurinn var fastamaður í liði ÍR í fyrra, lék alla leikina 27 og skoraði í þeim 4 mörk af miðjunni.
Arnar Hallsson þjálfari lagði mikið upp úr því að fá Jörgen aftur:

„Það er einstaklega ánægjulegt að fá Jörgen aftur til liðs við okkur, hann þekkir leikstílinn og strákarnir þekkja vel inná hann. Hann féll vel inn í hópinn í fyrra og var vel liðinn af öllum sem honum kynntumst."

„Jörgen óx stöðugt eftir því sem á tímabilið leið og spilaði sífellt betur. Veturinn hefur verið okkur góður og leikirnir sýndu okkur þjálfurunum að hans eiginleikar myndu gera mikið fyrir liðið. Ég er því einstaklega ánægður með að hafa fengið til liðs við okkur góðan leikmann sem getur orðið enn betri og frábæran liðsfélaga."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.