17.02.22 - 13:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Keflavík lánar unglingalandsliðsmarkvörð í Víði (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Keflavík hefur lánað unglingalandsliðsmarkvörðinn Helga Bergmann Hermannsson í Víði. Helgi á að baki þrjá leiki fyrir unglingalandsliðin og verður tvítugur í mars.
Víðir endaði í 8. sæti 3. deildar síðasta sumar og leikur því aftur í 3. deildinni.
Víðir endaði í 8. sæti 3. deildar síðasta sumar og leikur því aftur í 3. deildinni.
Helgi er ekki eini leikmaðurinn sem Víðir hefur fengið frá Keflavík í vetur. Kantmaðurinn Kristófer Orri Magnússon (2002) og varnarmennirnir Einar Örn Andrésson (2000) og Cezary Wiktorowicz (2000) hafa einnig skipt yfir til félagsins frá Keflavík síðustu daga.
Þá er Ási Þórhallsson (1995) kominn frá Reyni og tveir strákar fæddir árið 2005 komnir frá Keflavík. Það eru þeir Kristján Birkir Bjarkason og Valdimar Steinn Jóhannsson.
Þá er Ási Þórhallsson (1995) kominn frá Reyni og tveir strákar fæddir árið 2005 komnir frá Keflavík. Það eru þeir Kristján Birkir Bjarkason og Valdimar Steinn Jóhannsson.
