Fotbolti.net
17.02.22 - 12:29
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Kristín Erna aftur til Eyja (Staðfest)

Kristín Erna aftur til Eyja (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Kristín Erna Sigurlásdóttir er komin aftur til ÍBV eftir tveggja ára fjarveru.

Kristín er uppalin í Eyjum, er fædd árið 1991 og lék sína fyrstu meistaraflokksleiki árið 2007. Hún lék með ÍBV til ársins 2016 þegar hún tók eitt tímabil með Fylki en sneri svo aftur til Eyja.
Fyrir tímabilið 2020 gekk hún í raðir KR og lék svo með Víkingi síðasta sumar. Þar skoraði hún þrettán mörk í fimmtán leikjum.

Eftir síðasta tímabil fékk hún félagaskipti til ítalska félagsins Trani en er mætt aftur til Íslands.

Kristín er sóknarmaður sem hefur skorað 117 mörk í 221 leik í deild og bikar á Íslandi.

Komnar
Ameera Hussen frá Bandaríkjunum
Haley Thomas frá Bandaríkjunum
Kristín Erna Sigurlásdóttir frá Ítalíu
Sydney Carr frá Bandaríkjunum
Sandra Voitane frá Austurríki

Farnar
Auður S. Scheving í Val (var á láni)
Clara Sigurðardóttir í Breiðablik
Kristjana Sigurz Kristjánsdóttir í Breiðablik (Var á láni)
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.