Fotbolti.net
17.02.26 - 15:29
Elvar Geir Magnússon

Klopp hringdi bjöllunni á Vetrarólympíuleikunum

Klopp stóð sig vel í að hringja bjöllunni.

Klopp stóð sig vel í að hringja bjöllunni.

Canon

Mynd: EPA

Jurgen Klopp, fyrrum stjóri Liverpool, var viðstaddur keppni í boðgöngu karla í skíðaskotfimi á Vetrarólympíuleikunum á Ítalíu í dag.

Hann fékk það ábyrgðarmikla hlutverk að hringja bjöllunni fyrir lokahringinn í keppninni.

Í skíðaskotfimi er tvinnað saman skíðagöngu og skotfimi en Klopp er mjög hrifinn af íþróttinni og var aðdáandi hins goðsagnakennda Ole Einar Björndalen frá Noregi sem vann fjórtán verðlaun á Vetrarólympíuleikum.

Klopp er skíðaáhugamaður og fór um árið í skíðaferð til Íslands sem hann sagði hafa verið mikla upplifun.

Þess má svo geta að Frakkar tóku gullið í keppni dagsins sem var sýnd beint á RÚV þar sem Gunnar Birgisson lýsti af mikilli innlifun. „Sá hefur nægan frítíma," sagði Gunnar þegar hann sá hver hringdi bjöllunni.
Klopp hringdi bjöllunni á Vetrarólympíuleikunum
Canon

Mynd: Skjáskot

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.