Real Madrid lagði Benfica að velli þegar liðin mættust í Meistaradeildinni í kvöld. Þetta var fyrri leikur liðanna í umspilinu fyrir 16-liða úrslitin.
Liðin mættust í síðasta mánuði og þá hafði Benfica betur eftir mikla dramatík í lokin.
Liðin mættust í síðasta mánuði og þá hafði Benfica betur eftir mikla dramatík í lokin.
Nú enduðu leikar öðruvísi því Real Madrid tók sigurinn. Vinicius var hetja Madrídarstórveldisins þegar hann skoraði með flottu skoti snemma í seinni hálfleik.
Leikurinn var stopp lengi eftir markið því Vinicius neitaði að spila. Gianluca Prestianni, leikmaður Benfica, sagði eitthvað sem gerði Vinicius brjálaðan og Brasilíumaðurinn neitaði að spila.
Að lokum hélt leikurinn áfram en stuðningsmenn Benfica bauluðu á Vinicius í hvert skipti sem hann fékk boltann. Hann endaði sem hetjan og Real er í góðum málum fyrir seinni leikinn í næstu viku.
Evrópumeistararnir byrjuðu skelfilega
Í Mónakó mættu Evrópumeistarar Paris Saint-Germain í heimsókn og þeir lentu í miklum vandræðum í byrjun leiks. Eftir innan við mínútu var Mónakó komið yfir þegar Folarin Balogun skoraði. Hann bætti svo við öðru marki stuttu síðar.
Það virtist allt vera gegn PSG því Vitinha klúðraði vítaspyrnu og svo fór Ousmane Dembele meiddur af velli. En inn á fyrir Dembele kom Desire Doue og hann breytti leiknum. Hann skoraði nánast um leið og hann kom inn á, og jafnaði Achraf Hakimi svo rétt fyrir leikhlé.
Í byrjun seinni hálfleiks fékk Aleksandr Golovin að líta rauða spjaldið og gerði Doue sigurmarkið um miðjan seinni hálfleikinn. Endurkoma PSG fullkomnuð og þeir eru í góðum málum eins og Real Madrid þrátt fyrir brösulega byrjun í kvöld.
Dortmund vann svo nokkuð þægilegan sigur gegn Atalanta á heimavelli sínum. Serhou Guirassy og Maximilian Beier gerðu bæði mörkin í fyrri hálfleik í 2-0 sigri.
Umspilið heldur áfram á morgun með fjórum öðrum áhugaverðum leikjum.
Benfica 0 - 1 Real Madrid
0-1 Vinicius Junior ('50 )
Borussia D. 2 - 0 Atalanta
1-0 Serhou Guirassy ('3 )
2-0 Maximilian Beier ('42 )
Monaco 2 - 3 Paris Saint Germain
1-0 Folarin Balogun ('1 )
2-0 Folarin Balogun ('18 )
2-0 Vitinha ('22 , Misnotað víti)
2-1 Desire Doue ('29 )
2-2 Achraf Hakimi ('41 )
2-3 Desire Doue ('67 )
Rautt spjald: Aleksandr Golovin, Monaco ('48)
Athugasemdir


