Fotbolti.net
17.03.14 - 09:38
Magnús Már Einarsson

Chuck áfram hjá Þór (Staðfest)

Chuck áfram hjá Þór (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Framherjinn öflugi Chuckwudi Chijindu hefur skrifað undir nýjan eins árs samning við Þór.

,,Þetta eru gríðarlega góð tíðindi fyrir Þór og ljóst að á eftir að verða liðinu drjúgur ef að líkum lætur,\" segir á heimasíðu Þórs.

Chuck kom til Þórs um mitt sumar 2012 og hjálpaði liðinu að landa sæti í Pepsi-deildinni með fimm mörkum í níu leikjum.

Í fyrra skoraði Chuck síðan tíu mörk í 18 leikjum og skilaði mikilvægum stigum í hús fyrir Þórsara.

Eftir tímabilið var Chuck meðal annars orðaður við FH en nú er ljóst að hann mun leika áfram með Þórsurum í sumar.
Að sögn Magnúsar Inga Eggertssonar í leikmannaráði er leikmaðurinn væntanlegur til Akureyrar í byrjun apríl.

Heimild: Heimasíða Þórs

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.