Fotbolti.net
17.03.14 - 21:17
Magnús Már Einarsson

Einar Karl í Fjölni á láni (Staðfest)

Einar Karl í Fjölni á láni (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fjölnir hefur fengið miðjumanninn Einar Karl Ingvarsson á láni en þetta kemur fram á FHingar.net í kvöld.
Einar Karl æfði í síðustu viku með Víkingi R. en nú er ljóst að hann mun ganga til liðs við hina nýliðana í Fjölni.

Einar Karl er tvítugur en hann er uppalinn hjá FH og hefur leikið allan sinn feril með liðinu.

Einar Karl steig sín fyrstu skref með meistaraflokki árið 2010 en hann hefur samtals leikið 21 leik með FH í Pepsi-deildinni undanfarin ár og skorað eitt mark.

,,FH-ingar hafa verið að þreifa fyrir sér á leikmannamarkaðinum á undanförnum dögum og má búast við að einhver ný andlit munu spila í svart/hvítu treyjunni í Krikanum í sumar,\" segir einnig á Fhingar.net
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.