Fotbolti.net
17.03.14 - 21:29
Ívan Guðjón Baldursson

Táningur úr utandeildarliði til Hull City (Staðfest)

Johan Ter Horst tekur heldur stórt stökk í samningsmálum, úr áhugamannadeild yfir í eina sterkustu deild heims

Johan Ter Horst tekur heldur stórt stökk í samningsmálum, úr áhugamannadeild yfir í eina sterkustu deild heims

Canon

Mynd: Google

Johan Ter Horst er einn eftirsóttasti leikmaður utandeildarliða á Englandi og hefur nú skrifað undir þriggja ára samning við Hull City.

Horst er aðeins átján ára gamall og spilar með utandeildarliði Folkestone þar sem hann verður út tímabilið áður en hann fer til Hull í sumar.
Horst er sóknarmaður og hefur gert 21 mörk fyrir Folkestone á sínu fyrsta tímabili.

Aston Villa og Charlton Athletic höfðu einnig áhuga á leikmanninum en Hull hafði betur á endanum.

,,Ég er mjög ánægður fyrir hans hönd. Þetta er frábært tækifæri hjá góðu úrvalsdeildarfélagi,\" sagði Neil Cugley, knattspyrnustjóri Folkestone.

,,Önnur félög fóru illa með okkur í viðræðum en samskiptin við Hull hafa verið frábær. Steve Bruce er góður maður.\"

Heimild: Daily Mail

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.