17.03.16 - 17:30
Magnús Már Einarsson
Benis Krasniqi í Ægi (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ægir hefur fengið varnarmanninn reynda Benis Krasniqi í sínar raðir frá Gróttu.
Benis kom til Íslands árið 2009 en þá spilaði hann með KS/Leiftri og Reyni Sandgerði.
Hinn 34 ára gamli Benis lék með Haukum 2011 og 2012 áður en hann fór til Keflavíkur. Sumarið 2014 var Benis síðan á mála hjá KV.

Ægismenn eru að styrkja sig fyrir átökin í 2. deildinni í sumar en Ingólfur Þórarinsson kom til félagsins í gær.
Ægir hefur undanfarna daga einnig fengið Trausta Marel Guðmundsson frá KF, Róbert Freyr Samaniego frá Keflavík og Pálma Þór Ásbergsson úr Árborg.