Fotbolti.net
17.03.16 - 14:21
Magnús Már Einarsson

Bjarni Mark í Kristianstad (Staðfest)

Bjarni Mark Antonsson.

Bjarni Mark Antonsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Bjarni Mark Antonsson, leikmaður KA, hefur gengið til liðs við IFK Kristianstad í Svíþjóð en hann skrifaði undir tveggja ára samning við félagið.
Bjarni Mark stóð sig vel á láni hjá Fjarðabyggð á síðasta tímabili en hann getur bæði spilað sem miðjumaður og miðvörður.

Í síðasta mánuði fór Bjarni til Svíþjóðar til æfinga með Kristianstad og hann hefur nú samið við félagið.

Bjarni Mark er tvítugur en hann er sonur Antons Mark Duffield leikjahæsta leikmanns Íslandsmótsins frá upphafi.

Ólafur Guðmundsson leikur með handboltaliði Kristianstad en unnusta hans Tinna, er systir Bjarna.

Kristianstad leikur í sænsku C-deildinni en liðið hafnaði í 5. sæti þar í fyrra
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.