17.03.16 - 13:14
Magnús Már Einarsson
Víkingur Ó. semur við Svía (Staðfest)
Einar tekur fram hanskana

Frá undirskriftinni í dag.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Frá undirskriftinni í dag.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Víkingur Ólafsvík hefur samið við sænska vinstri bakvörðinn Pontus Nordenberg um að leika með liðinu í sumar.
Pontus er fæddur árið 1995 en hann hefur leikið fyrir öll yngri landslið Svía. Á dögunum var Pontus á reynslu hjá Breiðabliki en hann hefur nú samið við Víking.

Alfreð Már Hjaltalín skrifaði einnig undir nýjan þriggja ára samning við Ólafsvíkinga í dag en hann var í lykilhlutverki þegar liðið sigraði 1. deildina í fyrra.
Markvörðurinn reyndi Einar Hjörleifsson hefur einnig samið við Ólafsvíkinga en hann hefur ákveðið að taka hanskana af hillunni. Hinn 39 ára gamli Einar spilaði síðast deildarleik með Ólafsvíkingum í Pepsi-deildinni 2013 en hann var á bekknum hluta sumars í fyrra.
Einar mun berjast við spænska markvörðinn Cristian Martinez Liberato um markvarðarstöðuna í sumar.
Ólafsvíkingar tilkynntu þetta á fréttamannafundi í höfuðstöðvum N1 í dag en þar var einnig tilkynnt um að N1 verði aðalstyrktaraðili Ólafsvíkinga næstu þrjú árin.

Einar Hjörleifsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Pontus Nordenberg.

Mynd: Getty Images

Alfreð Már Hjaltalín.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð